Emil á leið til Þýskalands á reynslu

Emil Atlason
Emil Atlason mbl.is

Emil Atlason, leikmaður KR, er á leið til reynslu til þýska liðsins St. Pauli, en þetta staðfesti hann við mbl.is nú í kvöld.

„Ég er að fara til St. Pauli, en þeir eru búnir að fylgjast með mér í nokkrum leikjum. Ég mun fara til reynslu eftir landsleikinn [gegn Frakklandi með u-21 árs landsliðinu í október] og verð í viku. Þeir fóru að taka eftir mér í þeim leikjum og buðu mér til sín,“ sagði Emil.

St. Pauli leikur í næst efstu deild í Þýskalandi og segir Emil að hann vonist eftir því að fá samning þó hann mundi ekki taka hverju sem er. „Maður stefnir auðvitað út enda er það stefna allra sem spila fótbolta. Ég mundi allavega setjast niður og skoða það ef ég fengi samning, en ég mundi ekki fara út bara til þess að fara út,“ sagði Emil í samtali við mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert