Þetta verður ekki verra fyrir KR-inga

„Það er ekki hægt að hafa það mikið verra,“ sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, í samtali við mbl.is eftir 2:0-tap sinna manna í úrslitaleik bikarsins gegn Val á Laugardalsvelli í dag.

„Við vorum hreinlega ekki nógu góðir gegn sterku Valsliði sem var mjög skipulagt. Það kom okkur ekkert á óvart en við vorum ekki nógu góðir. Svona fer þetta oft. Við erum ekki einir um að spila leikinn, Valsmenn voru þrælöflugir og við áttum í basli með þá,“ sagði Bjarni. En hvernig mun ganga að rífa menn upp eftir svona vonbrigði?

„Vel. Þetta verður ekki verra fyrir KR-inga heldur en að tapa í úrslitaleik gegn þessu liði. Við munum rífa okkur upp,“ sagði Bjarni í samtali við mbl.is, en nánar er rætt við hann í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert