Mourinho þjálfar Inter Milan

José Mourinho.
José Mourinho. Reuters

Portúgalski knattspyrnuþjálfarinn José Mourinho hefur verið ráðinn þjálfari ítalska liðsins Inter Milan. Liðið tilkynnti nú í hádeginu að Mourinho hefði gert þriggja ára samning. 

Mourinho þjálfaði síðast enska liðið Chelsea, sem varð tvívegis enskur meistari undir hans stjórn. Honum var sagt upp störfum hjá Chelsea á síðasta ári.    

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert