Þór og ÍBV bæði til Írlands

Heimir Guðjónsson og hans menn í FH fá andstæðinga frá …
Heimir Guðjónsson og hans menn í FH fá andstæðinga frá Liechtenstein. mbl.is/Ómar

Þór og ÍBV mæta  bæði liðum frá Írlandi í fyrstu umferð Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu en FH-ingar fara til Liechtenstein. Dregið var í Nyon í Sviss rétt í þessu.

ÍBV mætir St. Patrick's Athletic annað árið í röð en Írarnir höfðu betur, 2:1 samanlagt, þegar liðin mættust í fyrra.

Þór, sem þreytir frumraun sína í Evrópukeppni, mætir írska liðinu Bohemians frá Dublin.

FH-ingar, sem voru í efri styrkleikaflokki í drættinum í dag, mæta Eschen-Mauren frá Liechtenstein.

FH á fyrri leikinn á heimavelli en bæði Þór og ÍBV byrja á útivelli. Fyrri leikir liðanna fara fram 5. júlí en seinni leikirnir 12. júlí.

Nú í hádeginu verður dregið til 2. umferðar í keppninni og þá kemur í ljós hverjir mótherjar íslensku liðanna verða ef þau komast í gegnum 1. umferðina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert