Ítalíumeistarar Juventus eru í góðri stöðu nú þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign þeirra gegn Bayern München í síðari leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.
Liðin skyldu jöfn á Ítalíu í fyrri leiknum, 2:2, en staðan í hálfleik er nú 2:0 fyrir Juventus. Paul Pogba kom þeim yfir strax á sjöttu mínútu áður en Juan Cuadrado bætti öðru marki við. Það var sérlega glæsilegt eftir magnaðan sprett Álvaro Morata, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.
Fylgst er með gangi mála í leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni hér á mbl.is og má opna lýsinguna HÉR.
That assist by Morata !pic.twitter.com/TqDqQNup6N
— 8 Fact Football (@8Fact_Footballl) March 16, 2016