KA sigraði í spennuleik

Frá leik KA og Þróttar R. í gær.
Frá leik KA og Þróttar R. í gær. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

KA vann Þrótt úr Reykjavík, 3:2, í úrvalsdeild kvenna í blaki á Akureyri í gær en leikurinn var langur og jafn og tók 108 mínútur. Þróttur hafði unnið leik liðanna í enn lengri viðureign fyrir norðan á föstudagskvöld, 3:2.

Þróttur vann fyrstu hrinu 25:20 en KA tvær þær næstu, 26:24 og 25:18. Þróttur jafnaði metin með sigri í þeirri fjórðu, 25:20, en KA vann lokahrinuna 15:12 og þá voru norðankonur heldur ákveðnari og gerðu færri mistök.

Stigahæstar í liði KA voru Unnur með 14, Birna með 13 og Friðrik og Ásta með 6 hvor.

Hjá Þrótti var Sunna stigahæst með 18 stig, María með 13 og Sunna Björk með 8 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert