Sigurpáll og Auðunn léku yfir pari í Svíþjóð

Sigurpáll Geir Sveinsson
Sigurpáll Geir Sveinsson Brynjar Gauti

Heiðar Davíð Bragason lék á einu höggi yfir pari eða 71 höggi á öðrum keppnisdegi Gambro mótsins á sænsku mótaröðinni í dag. Hann er samtals á 7 höggum yfir pari vallar og er hann í 72.-87. sæti. Sigurpáll Geir Sveinsson lék á tveimur höggum yfir pari í dag eða 72 höggum. Hann er samtals á þremur höggum yfir pari. Auðunn Einarsson bætti sig um fjögur högg á öðrum keppnisdegi þar sem hann lék á 71 höggi en hann er samtals á 6 höggum yfir pari. Sigurpáll er í 33.-41. sæti en Auðunn er í 58.- 71. sæti.

Staðan á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert