Valdís Þóra sigraði í Leirunni

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Eyþór Árnason

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni á Akranesi sigraði á fyrsta mótinu á Íslensku mótaröðinni í golfi í Leirunni í dag, var tveimur höggum á undan Rögnu Björk Ólafsdóttur úr Keili.

Eygló Myrra Óskarsdóttir, sem hafði forystu eftir fyrri daginn, endaði í þriðja sæti á 10 höggum yfir pari.  Valdís Þóra lék hins vegar á sjö höggum yfir pari í heildina, var á parinu í dag. Ragna Björk lék á fimm höggum yfir pari í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert