Haukum spáð sigri - meisturum HK falli

Haukar verða meistarar en HK fellur, samkvæmt spánni.
Haukar verða meistarar en HK fellur, samkvæmt spánni. mbl.is/Árni Sæberg

Haukum er spáð Íslandsmeistaratitli karla í handknattleik en Íslandsmeisturum HK er hinsvegar spáð falli og Val umspilssæti. Það er niðurstaðan í könnun meðal þjálfara, fyrirliða og  forráðamanna liðanna í N1-deild karla sem gerð var á kynningarfundi deildarinnar í dag.

Haukar fengu all afgerandi kosningu en miðað við stigatölurnar er búist við jöfnu Íslandsmóti að öðru leyti. Niðurstaðan varð þessi:

1. Haukar 237
2. FH 193
3. ÍR 175
4. Akureyri 170
5. Afturelding 130
6. Fram 128
7. Valur 112
8. HK 103

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert