Frakkar heimsmeistarar

Leikmaður Frakka í skotstöðu.
Leikmaður Frakka í skotstöðu. Ljósmynd/IHF

Frakkar hömpuðu heimsmeistaratitlinum á HM piltalandsliða í handknattleik skipað 19 ára og yngri sem lauk í Rússlandi í dag.

Frakkar höfðu betur á móti Slóvenum í úrslitaleiknum, 33:26, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 16:13. Fyrr í dag tryggðu Íslendingar sér bronsverðlaunin með því að leggja Spánverja að velli, 26:22.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert