Marokkó fyrsta Afríkuþjóð sögunnar í undanúrslit

Marokkómenn fagna eftir leik.
Marokkómenn fagna eftir leik. AFP/Kirill Kudryavtsev

Marokkó varð í dag fyrsta Afríkuþjóðin til þess að komast í undanúrslit heimsmeistaramóts karla í fótbolta eftir 1:0 sigur á Portúgal í Doha í Katar. 

Youssef En-Nesyri skoraði sigurmarkið er hann stangaði boltann í netið á 42. mínútu eftir flotta fyrirgjöf frá Yahia Attiyat Allah. 

Marokkó vann Spán í vítaspyrnukeppni eftir 0:0 jafntefli í 16-liða úrslitunum en Portúgal vann stórsigur á Sviss, 6:1. Sigurliðið mætir Englandi eða Frakklandi í undanúrslitum miðvikudagskvöldið 14. desember.

Achraf Dari og Jawad El Yamiq hugga Ronaldo eftir leik.
Achraf Dari og Jawad El Yamiq hugga Ronaldo eftir leik. AFP/Patricia De Melo Moreira

Strax á fimmtu mínútu fékk Joao Félix hörku skallafæri eftir háa sendingu frá Bruno Fernandes úr aukaspyrnu. Yassine Bono var þó vandanum vaxinn í marki Marokkó og varði vel. Tveimur mínútum síðar fékk Youssef En-Nesyri einnig gott skallafæri eftir hornspyrnu er hann var einn á auðum sjó í teignum. Skalli hans var hinsvegar lélegur og langt yfir fór boltinn. 

Joao Felix skallar að marki Marokkó en Yassine Bounou varði …
Joao Felix skallar að marki Marokkó en Yassine Bounou varði vel. AFP/Odd Andersen

Á 31. mínútu var svo Félix aftur líklegur. Þá skoppaði boltinn fyrir hann rétt utan teigs og hann tók utanfótarskot sem var á leiðinni að fjærstönginni en Jamad Ell Yamiq í vörn Marokkó komst fyrir boltann sem fór af honum og rétt yfir. 

Selmin Amallah fékk svo fínt skotfæri fjórum mínútum síðar en hann hitti boltann afar illa og skaut lengst yfir. 

Sofiane Boufal, sóknarmaður Marokkó, kom sér svo í fínt skotfæri á 36. mínútu en skot hans var laust og í fangið á Diogo Costa. 

Á 42. mínútu komst svo Marokkó yfir. Þá kendi Yahia Attiyat Allah háa sendingu fyrir sem stefndi í fangið á Diogo Costa. Youssef En-Nesyri stökk þó hæst í teignum og komst á undan í boltann og stangaði hann í grasið og þaðan skoppaði hann í netið. Glæsilega gert hjá En-Nesyri og Marokkó komið yfir. 

Mínútu síðar sendi Bruno Fernandes fyrirgjöf fyrir sem hafnaði í slánni. Nokkru seinna vildi hann svo meina að brotið hafi verið á honum í teig Marokkó en dómaranum, Facundo Raúl Tello Figueroa, lét sér fátt um finnast. 

Marokkóar geystust svo í sókn þar sem Ziyech kom boltanum á Attiyat Allah sem setti hann framhjá í góðri stöðu. 

Youssef En-Nesyri fagnar marki sínu ásamt Achraf Hakimi.
Youssef En-Nesyri fagnar marki sínu ásamt Achraf Hakimi. AFP/Nelson Almeida
Marokkóar fagna marki Youssef En-Nesyri.
Marokkóar fagna marki Youssef En-Nesyri. AFP

Ziyech tók svo stórhættulega aukaspyrnu inn í teiginn þegar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Þar kýldi Costa boltanum í El Yamiq og þaðan fór boltinn rétt framhjá. 

Cristiano Ronaldo og Joao Cancelo komu svo inn á í liði Portúgal mínútu síðar. 

Otávio gerði svo listilega vel á 57. mínútu og kom boltanum á Goncalo Ramos sem skallaði hann framhjá úr góðri stöðu. 

Fernandes fékk svo hörku skotfæri rétt utan teigs á 64. mínútu en setti boltann rétt yfir markið.

Á 83. mínútu lagði Cristiano Ronaldo svo boltann á Félix sem tók hann í fyrsta hægra megin í teignum og Félix tók viðstöðulaust skot sem stefndi í þaknetið en Yassine Bono varði meistaralega.

Fernandes þræddi svo Ronaldo í gegn á fyrstu mínútu uppbótartímans en sá síðarnefndi var í erfiðri stöðu og náði ekki nægilega góðu skoti sem Bono varði örugglega. 

Varamaðurinn Walid Cheddira fékk svo tvö ansi klaufaleg gul spjöld með stuttu millibili og var rekinn af velli á þriðju mínútu uppbótartímans og Marokkó manni færri lokamínúturnar. 

Miðvörðurinn Pepe fékk svo frían skalla á fjærstönginni á sjöundu mínútu uppbótartímans en skallaði boltann framhjá. 

Portúgalar reyndu og reyndu að jafna metin í seinni hálfleik og fengu hörkufæri til. Inn vildi þó boltinn ekki og Marokkómenn fara því í undanúrslitin á meðan að Ronaldo og félagar eru á heimleið. 

Marokkómenn fagna eftir leik.
Marokkómenn fagna eftir leik. AFP/Nelson Almeida

Lið Mar­okkó:
Mark: Yass­ine Bono
Vörn: Achraf Hakimi, Jawad El Yamiq, Romain Saiss, (Achraf Dari 58.) Ya­hia Att­iyat Allah
Miðja: Azzedine Ouna­hi, Sofy­an Amra­bat, Selim Am­allah (Walid Cheddira 65. )
Sókn: Hakim Ziyech, (Zakaria Aboukhlal 82.) Youss­ef En-Nes­yri, (Badr Banoune 65.) Sofia­ne Boufal (Yahya Jabrane 82.)

Lið Portúgals:
Mark: Di­ogo Costa
Vörn: Di­ogo Dalot (Ricardo Horta 79.), Pepe, Ru­ben Dias, Rap­hael Gu­er­reiro (Joao Cancelo 51.)
Miðja: Otávio, (Vitinha 70.) Ru­ben Neves, (Cristiano Ronaldo 51.) Bern­ar­do Silva, Bruno Fern­and­es
Sókn: Goncalo Ramos, (Rafael Leao 70.) Joao Félix

Portúgalinn Bruno Fernandes og Marokkóinn Selim Amallah berjast um boltann.
Portúgalinn Bruno Fernandes og Marokkóinn Selim Amallah berjast um boltann. AFP/Nelson Almeida
Lykilmaður Portúgals Bruno Fernandes fyrir leik.
Lykilmaður Portúgals Bruno Fernandes fyrir leik. AFP/Kirill Kudryavtsev
Hakim Ziyech og þjálfarinn Walid Regragui fagna sigri Marokkó á …
Hakim Ziyech og þjálfarinn Walid Regragui fagna sigri Marokkó á Spáni í sextán liða úrslitum keppninnar. AFP/Jack Guez
Cristiano Ronaldo horfir á leikinn frá bekknum.
Cristiano Ronaldo horfir á leikinn frá bekknum. AFP/Patricia De Melo Moreira
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert