Aron: Ég biðst afsökunar

Aron Pálmarsson var afar svekktur eftir tapleikinn gegn Rússum á HM eins og eðlilegt er og ekki síst var stórskyttan frá Kiel óánægð með eigin frammistöðu í leiknum.

„Ég trúi þessu varla ennþá. Ég er gríðarlega svekktur með þessi úrslit og með eigin frammistöðu. Ég spilaði alveg eins og asni og ég biðst bara afsökunar á frammistöðu minni. Ég gerði hrikalega marga feila í leiknum,“ sagði Aron við mbl.is en frekar er rætt við hann í myndbandinu með þessari frétt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert