Grindvíkingar slógu Skallagrím út

Grindvíkingar urðu í kvöld fjórða og síðasta liðið til að komast í undanúrslitin í keppninni um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik þegar þeir unnu Skallagrím, 97:81, í oddaleik í Borgarnesi. Grindavík mætir Njarðvík í undanúrslitunum og KR leikur við Snæfell.

Jonathan Griffin skoraði 28 stig fyrir Grindavík og Adam Darboe 22 en Darrell Flake var stigahæstur Borgnesinga með 31 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert