Fortis komið til bjargar

Fortis
Fortis Reuters

Ríkisstjórnir Belgíu, Hollands og Lúxemborgar hafa ákveðið að setja 11,2 milljarða evra inn í fjármálafyrirtækið Fortis sem hefur glímt við mikla erfiðleika að undanförnu. Forsætisráðherra Belgíu, Yves Leterme, greindi frá þessu í kvöld.

Um samstilltar aðgerðir er að ræða til þess að styrkja stöðu Fortis, sem rekur auk bankaþjónustu, tryggingafélag. Efndu ríkisstjórnir Benelúx-landanna til neyðarfundar í dag þar sem gengið var frá samkomulaginu.

Markaðsvirði Fortis dróst saman um tæpan fjórðung í síðustu viku eftir að orðrómur fór á kreik um erfiða stöðu bankans og greiðslugeta hans var stórlega dregin í efa. 

Verður Fortis gert að selja allan hlut sinn í hollenska bankanum ABN Amro en Fortis tók yfir hluta bankans á síðasta ári.

Samkomulagið handsalað í Belgíu í dag.
Samkomulagið handsalað í Belgíu í dag. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK