Seðlabanki fer ekki tjónlaus frá falli bankanna

Seðlabankinn segir í yfirlýsingu að ekki sé endanlega ákveðið hvað verði um kröfur Seðlabankans vegna skuldabréfa gömlu bankanna og hvort og þá hve mikið verðbréf í eigu Seðlabankans kunna að falla í verði. Líkur séu þó á að Seðlabankinn fari ekki tjónlaus frá falli viðskiptabankanna þriggja enda hefði það verið nánast útilokað. Niðurstaða mun liggja fyrir þegar sérfræðinganefnd, sem metur eignir og skuldir nýju og gömlu bankanna, lýkur störfum.

Í yfirlýsingunni segir, að líkt og aðrir seðlabankar veiti Seðlabanki Íslands fjármálafyrirtækjum reglulega lausafjárfyrirgreiðslu í formi lána gegn veði. Veð, sem fjármálafyrirtæki leggi fram, þurfi að uppfylla skilyrði reglna Seðlabankans um viðskipti við þau. Þær séu áþekkar reglum annarra seðlabanka. Meðal skuldabréfa sem uppfylla skilyrði reglnanna séu ríkisskuldabréf og bréf fjármálafyrirtækja sem uppfylla skilgreindar lágmarkskröfur, svo sem um lánshæfi.

„Eins og aðrir seðlabankar leitaðist Seðlabanki Íslands með fyrirgreiðslu sinni við að auðvelda starfsemi innlendra fjármálafyrirtækja í þeirri fjármálakreppu sem riðið hefur yfir heiminn. Seðlabankinn fylgdi í því efni fordæmi annarra seðlabanka og jók fyrirgreiðslu sína og þar með áhættu. Hann gekk þó ekki jafn langt og þeir seðlabankar sem lengst gengu.

Við stofnun nýrra banka um rekstur innlendrar viðskiptabankastarfsemi eftir að þrír bankar komust í þrot færðust innlend innlán til þeirra. Þá kom til álita að skuldir vegna verðbréfa, sem veðsett voru Seðlabankanum færðust einnig þangað til að treysta áframhald innlendrar bankastarfsemi. Við nánari skoðun Fjármálaeftirlits og forsvarsmanna ríkissjóðs, í samráði við lögfræðilega ráðgjafa, innlenda sem erlenda, þótti rétt að öll skuldabréf útgefin af gömlu bönkunum yrðu að svo stöddu þar eftir til þess að tryggja gagnsæi og að kröfuhöfum yrði ekki mismunað.

Á þessi stigi er því ekki endanlega ákveðið hvað verður um framangreindar kröfur Seðlabankans og þá hvort og hve mikið verðbréf í eigu Seðlabankans kunna að falla í verði. Líkur eru þó á að Seðlabankinn fari ekki tjónlaus frá falli viðskiptabankanna þriggja enda hefði það verið nánast útilokað. Niðurstaða mun liggja fyrir þegar nefnd, sem metur eignir og skuldir nýju og gömlu bankanna, lýkur störfum. Hún er skipuð erlendum fagaðilum og fær liðsinni innlendra sérfræðinga. Með þeim hætti er kappkostað að matið verði hlutlaust og faglega unnið í hvívetna. Mikið er í húfi að endurheimt verði eins mikið af útistandandi kröfum og kostur er til þess að lágmarka tjón kröfuhafa bankanna," segir í yfirlýsingunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK