Bankastjóri Glitnis með 1750 þúsund í laun

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis.

Stjórn Nýja Glitnis, í samráði við framkvæmdastjórn bankans, hefur samþykkt launaramma fyrir stjórnendur og starfsmenn bankans. Í því felst að mánaðarlaun bankastjóra verða 1750 þúsund krónur.

Í tilkynningu frá bankanum segir að nokkur óvissa hafi ríkt um launakjör og réttindi starfsmanna bankans síðan Nýi Glitnir var stofnaður. Nú liggi launarammi bankans endanlega fyrir og verið samþykktur af stjórn bankans.

Fram kom í vikunni að Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, fær 1950 þúsund krónur í mánaðarlaun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK