Þjóðverjar lána Íslandi vegna Kaupþings

Reuters

Þýsk stjórnvöld sögðust í dag myndu lána tryggingasjóði innlána á Íslandi 308 milljónir evra, rúmlega 54 milljarða króna, svo hægt verði að greiða þýskum sparifjáreigendum, sem áttu fé inni á reikningum Kaupþings. Þetta kemur fram í viðtali sem þýska blaðið Tagesspiegel átti við Peer Steinbrück, fjármálaráðherra Þýskalands.

Talsmaður þýska fjármálaráðuneytisins sagði við Reutersfréttastofuna, að um væri að ræða þá upphæð, sem Þjóðverjar hefðu átt inni á reikningum Kaupþings. 

Bretland, Holland og Þýskaland sendu í vikunni frá sér sameiginlega yfirlýsingu í kjölfar þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn samþykkti að lána Íslandi 2,1 milljarð dala. Sögðust löndin myndu útvega Íslandi lánsfé til að hægt verði að standa við skuldbindingar við erlenda sparifjáreigendur, sem áttu fé á íslenskum bankareikningum. 

Breska fjármálaráðuneytið hefur áætlað að það muni lána Íslandi 2,2 milljarða punda, jafnvirði 460 milljarða króna, og Holland segist gera ráð fyrir að upphæð sem Hollendingar eigi á íslenskum reikningum, sé 1,2-1,3 milljarðar evra, jafnvirði 212-230 milljarðar króna.

Kaupþing sagði í síðustu viku, að vonir stæðu til þess að hægt yrði að greiða þýskum sparifjáreigendum innistæður þeirra á næstu dögum eða vikum. Þýska fjármálaeftirlitið hefur stöðvað starfsemi Kaupþings í Þýskalandi tímabundið meðan unnið hefur verið að lausn þessara mála.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Hjálmar Gíslason: „ Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ...

DataMarket á Bandaríkjamarkað

11:31 Gagnavinnslufyrirtækið DataMarket hefur undanfarið einbeitt sér að Bandaríkjamarkaði og hefur nú lokið mikilvægum samningum þar og náð í öfluga samstarfsaðila. Meira »

Íslenskir lífeyrissjóðir með verstu ávöxtun innan OECD

11:05 Ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða var umtalsvert verri á árunum 2008-2010 en annarra lífeyrissjóða í OECD. Á þessu árabili skiluðu íslenskir lífeyrissjóðir 8,4% neikvæðri ávöxtun, en lífeyrissjóðir í OECD skiluðu að meðaltali 1,4% neikvæðri ávöxtun. Meira »

SFO bað Tchenguiz afsökunar

Vincent Tchenguiz.
09:42 Breska efnahagsbrotadeildin, Serious Fraud Office (SFO), hefur sent formlegt bréf til breska kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz, þar beðist er afsökunar á mistökum sem gerð hafi verið þegar hann var handtekinn í mars í fyrra í tengslum við rannsókn á Kaupþingi. Meira »

Loka Apótekaranum á Akranesi

Apótek Vesturlands er orðið eitt á lyfjamarkaði á Akranesi.
08:27 Lyfjaverslun Lyf og heilsa hefur ákveðið að loka lyfjaversluninni Apótekarinn á Akranesi þann fyrsta mars. Apótekið hefur verið opið í verslanamiðstöðinni á Dalbraut 1 frá því Lyf og heilsa lokaði lyfjaverslun við Kirkjubraut á sínum tíma. Meira »

Lækkun á Wall Street

Frá Wall Street
Í gær, 21:18 Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street í kvöld en lækkunin er rakin til hagtalna á evru-svæðinu sem benda til þess að efnahagslægð hafi tekið sér bólfestu þar á ný. Meira »

Skuldabréf seld fyrir 12,5 milljarða

Yfirlit yfir útboð skuldabréfa
Í gær, 18:02 Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í janúar 2012 nam 12,5 milljörðum króna á söluverði samanborið við 4,1 milljarð mánuðinn áður. Meira »

Færir Advania forystu? myndskeið

Alkemistinn mbl 45 Advania
09:29 Nokkur umræða hefur verið síðustu vikur, sérstaklega á samfélagsmiðlum um nýtt nafn Skýrr eða nafnið Advania. Fljótlega eftir að nafnið var kynnt fóru af stað vangaveltur um að latnesk merking orðanna „Ad vania“ væri „til einskis“ og var Google Translate skrifað fyrir þeirri þýðingu. Meira »

Kína í krísu eftir 20 ár?

07:07 Kínverjar gætu staðið frammi fyrir efnahagskrísu, hugi þeir ekki að endurbótum á fjármálakerfi sínu á næstu 20 árum. Þetta segir í nýrri skýrslu Alþjóðabankans og kínversku ríkisstjórnarinnar, sem ber heitið „Kína 2030“. Meira »

Færir Advania forystu?

Olíuverð heldur áfram að hækka

Í gær, 20:41 Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði töluvert í dag og fór verð á Brent-Norðursjávarolíu yfir 123 Bandaríkjadali tunnan og í New York fór verð á hráolíu í 106,47 dali en svo hátt olíuverð hefur ekki sést á mörkuðum síðan í byrjun maí í fyrra. Meira »

Valitor samdi við Advania

Advania
Í gær, 17:46 Valitor hefur samið við Advania um hýsingu, netkerfi, tengdan vélbúnað og öryggislausnir fyrir upplýsingakerfi fyrirtækisins. Meira »

Bluebird Cargo í opið söluferli

Boeing 737-þota Bláfugls
Í gær, 16:11 PwC hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 100% hlut í Bluebird Cargo ehf., sem er í eigu SPW ehf., dótturfélags Miðengis ehf. Meira »

Tveir vildu hækka vexti

Seðlabanki Íslands.
Í gær, 17:51 Tveir nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greiddu atkvæði gegn tillögu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra um að halda stýrivöxtum óbreyttum á síðasta vaxtaákvörðunardegi. Vildu þeir hækka vextina um 0,25 prósentur. Meira »

Beiðni Tchenguiz-bræðra samþykkt

Robert og Vincent Tchenguiz.
Í gær, 17:12 Breskur dómstóll hefur samþykkt beiðni bræðranna, Vincents og Roberts Tchenguiz, um að fara yfir mál þeirra þegar þeir voru handteknir í mars í fyrra í tengslum við rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office, á Kaupþingi. Meira »

Lækkun beggja vegna Atlantsála

Hlutabréfavísitölur hafa lækkað í dag.
Í gær, 15:45 Þrátt fyrir að allar helstu hlutabréfavísitölur hafi lækkað í Evrópu í dag hefur evran ekki gefið eftir gagnvart Bandaríkjadal. Eins hafa bandarískar hlutabréfavísitölur lækkað í dag. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir