Húsleit hjá Samtökum atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins

Starfsmenn sérstaks saksóknara gerðu í dag húsleit á starfsstöð Þórs Sigfússonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, á skrifstofu samtakanna, en Þór hefur haft þar starfsaðstöðu í nokkrar vikur eftir að hann lét af störfum sem forstjóri Sjóvár.

Kemur fram á vef SA að leitað var að gögnum sem tengjast fyrri störfum Þórs hjá Sjóvá en sérstakur saksóknari hefur dag látið leita víðar að gögnum um fjárfestingastarfsemi fyrirtækisins á undanförnum árum. Þór er leitarþoli í þessu tilviki en réttarstaða hans í málinu hefur ekki verið skilgreind að öðru leyti.

Þór er nú í sumarfríi og tekur ekki þátt í störfum SA á meðan. Vonast er til að þegar Þór kemur úr fríi undir lok mánaðarins liggiréttarstaða hans í málinu fyrir, að því er segir á vef samtakanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK