Forsvarsmenn Sparisjóðs Vestmannaeyja gengu á fund Fjármálaeftirlitsins nú á fjórða tímanum. Á fundinum munu þeir leggja fram þrjár tillögur sem miða að því koma sjóðnum í rekstrarhæft horf. Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um hefur atburðarásin verið nokkuð hröð síðustu sólarhringana og nú síðast barst stjórn Sparisjóðsins erindi þar sem Arion banki gerir tilboð í sjóðinn. Það gerðist eftir að Morgunblaðið upplýsti um að til stæði að Landsbankinn gerði tilboð í Sparisjóðinn.
Í fyrsta lagi er lagt til að sjóðurinn verði áfram rekinn sem sjálfstæð fjármálastofnun og að erlendur aðili komi að sem nýr meirihlutaeigandi. Í öðru lagi er tillaga um að Landsbankinn taki yfir starfsemi sjóðsins og í þriðja lagi kemur til greina, í ljósi nýjasta útspils Arion banka, að hann taki yfir starfsemi sjóðsins með einum eða öðrum hætti.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að það hafi gerst fyrr í dag að erlendur fjárfestir hafi lýst sig reiðubúinn til að leggja sjóðnum til nýtt eigið fé og að þar sé um að ræða framlag sem tryggja muni viðkomandi meirihlutaeign í sjóðnum.
Fjármálaeftirlitið hafði veitt stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja frest til klukkan 16:00 í dag til að skila inn fullnægjandi tillögum sem tryggt gætu eiginfjárstöðu sjóðsins. Ekki er vitað á þessari stundu hvort sá frestur verði framlengdur eða hvort Fjármálaeftirlitið muni nú þegar ákveða hvort einhver hinna þriggja leiða verði fyrir valinu eða hvort Sparisjóðnum verði skipuð slitastjórn.