Hús á rúman hálfan milljarð

Húsið er engin smásmíði, 505 fermetrar og stendur á lóð …
Húsið er engin smásmíði, 505 fermetrar og stendur á lóð við austanvert Urriðakotsvatn. Ljósmynd/Miklaborg

Ríflega 500 fermetra einbýlishús sem stendur við Urriðakotsvatn í Urriðaholti er nú komið á sölu en heimildir mbl.is herma að uppsett verð á húsinu sé rúmar 500 milljónir króna. Samkvæmt auglýsingu er óskað tilboða í húsið. Það var reist árið 2020 og stendur við Dýjagötu 12.

Sífellt fjögar dæmum um að einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu seljist á mörghundruð milljónir króna.

Eitt baðherbergjanna er klætt marmara og með útsýni út á …
Eitt baðherbergjanna er klætt marmara og með útsýni út á vatnið. Ljósmynd/Miklaborg

 Árið 2021 keypti Davíð Helgason, fjárfestir hús Skúla Mogensen við Hrólfsskálavör á 500 milljónir króna. Bætti hann um betur nokkru síðar og keypti einnig lóðina við hliðina á húsinu sem stendur við Steinavör 2.

Þá greindi Smartlandið frá því fyrr í sumar að fjárfestarnir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Grímur Gíslason hefðu keypt einbýlishús við Túngötu í Reykjavík á 575 milljónir króna.

Sífellt fleiri einbýlishús ganga kaupum og sölum á hálfan milljarð …
Sífellt fleiri einbýlishús ganga kaupum og sölum á hálfan milljarð eða meira. Ljósmynd/Miklaborg

 Ekki aðeins einbýlishús

Það eru hins vegar ekki aðeins einbýlishús sem ganga kaupum og sölum fyrir háar fjárhæðir. Þannig seldist þakíbúð í óreistu húsi við Vesturvin í febrúar síðastliðnum á 420 milljónir króna. 

Og þá var greint frá því síðasta sumar að hlutafélagið Dreisam, sem er í eigu Jónasar Hagan Guðmundssonar hefði keypt þakíbúð og tvö bílastæði við Austurhöfn í Reykjavík á 620 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK