Palin sögð hygla vinum sínum

Todd Palin, eiginmaður Söruh Palin, ásamt börnum þeirra Wilow, Piper …
Todd Palin, eiginmaður Söruh Palin, ásamt börnum þeirra Wilow, Piper og Trig.

Staðhæft er í bandaríska stórblaðinu The New York Times í dag að Sarah Palin, varaforsetaefni bandarískra repúblíkana, hafi veitt a.m.k. fimm vinum sínum stjórnunarstöður á vegum hins opinbera á þeim tveimur árum sem hún hefur verið ríkisstjóri í Alaska.

Samkvæmt heimildum blaðsins skipaði hún m.a. vinkonu sína Franci Havemeister í vel launaða stjórnunarstöðu innan landbúnaðarráðuneytis ríkisins. Þá munu viðtöl blaðamanna blaðsins  við stjórnmálamenn og embættismenn hafa leitt í ljós að a.m.k. fimm vinir hennar hafi fengið opinberar stöður í stjórnartíð hennar sem séu mun betur borgaðar en sambærileg störf á almennum vinnumarkaði.  
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert