Breska sjúkrahúsið þar sem tíu mánaða drengur með banvænan sjúkdóm dvelur lýsti því yfir í dag að það myndi rannsaka fullyrðingar þess efnir að hægt væri að veita drengnum meðferð eftir að Donald Trump og Frans páfi vöktu athygli á málinu.
Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði í síðasta mánuði að Great Ormond Street Hospital for Children í London megi slökkva á öndunarvél Charlie Gard.
Drengurinn þjáist af sjaldgæfum hrörnunarsjúkdómi en læknar segja að hann geti ekki séð, heyrt, hreyft sig, grátið eða kyngt. Hann er háður öndunarvél og hefur dvalið á gjörgæslu frá því í október.
„Tveir alþjóðlegir spítalar hafa haft samband við okkur á síðasta sólarhringnum til að láta okkur vita að þeir séu með vísbendingar um tilraunameðferð,“ kemur fram í yfirlýsingu frá spítalanum.
„Við, og foreldrar drengins, teljum að það sé rétt að kanna þessar vísbendingar.“
Foreldrar Gard hafa barist fyrir því að fá að flytja drenginn til Bandaríkjanna í tilraunameðferð. Frans páfi lýsti á sunnudag yfir stuðningi við foreldra Gard og sagðist vonast til þess að læknar myndu sjá um drenginn þar til yfir lyki.
Sjúkrahús í Vatíkaninu hefur boðist til að hlúa að Gard. Trump sagði á mánudag að Bandaríkin væru reiðubúin að aðstoða drenginn og fjölskyldu hans.