Stjórnvöld marki stefnu til langs tíma

Stjórn Samtaka iðnaðarins telur nauðsynlegt að ríkisstjórn og Seðlabanki marki sér stefnu til langs tíma í efnahagsmálum, tali skýrt og grípi þegar í stað til ráðstafana til þess að greiða úr alvarlegum lausafjárskorti, koma jafnvægi á gengi krónunnar og dragi þannig úr neikvæðum áhrifum niðursveiflu efnahagslífsins.

Í ályktun samtakanna segir að brýnt sé að tryggja eðlilegt flæði gjaldeyris á markaði með öllum tiltækum ráðum, s.s. gjaldeyrisskiptasamningum.

„Það er nauðsynlegt til þess að koma fjármagni inn á uppþornaðan íslenskan lánamarkað. Seðlabankar um allan heim keppast við að smyrja hjól atvinnulífsins með lausafé. Það ætti íslenski Seðlabankinn líka að gera.“

Samtökin hvetja jafnframt til lækkunar stýrivaxta.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert