Mótmælt á Egilsstöðum

Frá mótmælunum á Egilsstöðum í kvöld.
Frá mótmælunum á Egilsstöðum í kvöld.

Fólk var byrjað að safnast saman á kaupfélagsplaninu á Egilsstöðum laust fyrir klukkan hálf átta í kvöld. Það hvatti Egilsstaðabúa og alla sem vilja til að mæta sem fyrst með potta, pönnur og annað slagverk og mótmæla ríkisstjórninni. Þetta kemur fram á austfirska fréttavefnum Austurglugganum.

Næsti skipulagði mótmælafundur mun að sögn forsvarsmanna verða á laugardaginn kemur í Tjarnargarðinum og hefjast klukkan 15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert