Ráðherra hafnar færslu hringvegar í Mýrdal

Deilur hafa staðið um færslu vegarins um Reynishverfi í Mýrdal. …
Deilur hafa staðið um færslu vegarins um Reynishverfi í Mýrdal. Hann á að liggja við Dyrhólaós.

Umhverfisráðuneytið hefur synjað staðfestingu á nýju aðalskipulagi Mýrdalshrepps sem gerir ráð fyrir að hringvegur færist að Dyrhólaósi.

Þau rök eru færð fyrir málinu að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hafi úrskurðað að einn sveitarstjórnarmaður hafi verið vanhæfur við afgreiðslu skipulagsins.

Hatrammar deilur hafa staðið um legu hringvegarins. Meirihluti skipulagsnefndar og sveitarstjórnar samþykkti loks á síðasta ári að gera ráð fyrir legu hans með Dyrhólaósi, um jarðgöng í Reynisfjalli og á sjóvarnargarði í Víkurfjöru, í stað þess að fara yfir Reynisfjall og um Víkurþorp. Fyrirhugað vegstæði liggur um akra bænda í Reynishverfi, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert