154 hafa sótt um hæli hér

Flóttamenn streyma til Evrópu en flestir þeirra koma frá Sýrlandi. …
Flóttamenn streyma til Evrópu en flestir þeirra koma frá Sýrlandi. Alls hafa 18 Sýrlendingar sótt um hæli hér það sem af er ári. Þrír þeirra hafa verið sendir til annars Evrópulands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. AFP

Samtals sóttu 154 um hæli á Íslandi á fyrstu átta mánuðum ársins. Er það 66% aukning miðað við sama tíma árið 2014 en þá höfðu 93 sótt um hæli. Í ágúst sóttu 49 manns um hæli á Íslandi en það eru jafnmargir og sóttu um samtals síðustu þrjá mánuðina á undan.

Til að setja töluna í samhengi þá sóttu alls 35 manns um hæli á Íslandi árið 2009 og 50 árið 2010, segir í frétt á vef innanríkisráðuneytisins. 

Umsækjendur eru af samtals 32 þjóðernum auk þess sem einn umsækjandi er ríkisfangslaus. Albanir eru langfjölmennastir og telja 51 umsækjanda, rétt tæplega þriðjung allra umsókna.

„ Í ljósi borgarastyrjaldarinnar sem geisað hefur í Sýrlandi síðan árið 2011 þarf ekki að undrast að Sýrlendingar eru næstfjölmennasta þjóðernið meðal umsækjenda. Þeir eru átján talsins eða 12% allra umsókna,“ segir á vef innanríkisráðuneytisins.

Þrír Sýrlendingar sendir til annars Evrópuríkis

Átta málum Sýrlendinga hefur verið lokið hér á landi með ákvörðun Útlendingastofnunar á árinu. Fjórum einstaklingum var veitt staða flóttamanns og hæli á Íslandi og þrír voru sendir til annars Evrópuríkis á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Í einu máli hafði umsækjandi þegar fengið vernd í Evrópuríki og var honum gert að snúa aftur þangað.

„Í ljósi borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi kemur ekki til greina að vísa Sýrlendingum aftur þangað. Sé hætta á að sýrlenskum umsækjendum sé vísað þangað, verði þeim snúið til annars Evrópuríkis, kemur ekki til greina að senda þá til viðkomandi ríkis.

Leitast er við að leysa hratt og örugglega úr málum Sýrlendinga og borgara annarra ríkja þar sem stríðsátök geisa. Þannig var málum tveggja Sýrlendinga lokið á innan við mánuði í júlí,“ segir á vef ráðuneytisins.

Fleirum synjað um vernd en þeim sem fá vernd

Alls veitti Útlendingastofnun 48 manns hæli eða aðra vernd hér á tímabilinu frá byrjun janúar til loka ágúst á þessu ári. Fimmtíu var synjað um vernd en öðrum málum lauk með öðrum hætti.

„Af þeim málum sem lauk með ákvörðun – þar sem umsækjandi dró umsókn ekki til baka eða lét sig hverfa – var veitt vernd í 35% tilfella. 36% mála lauk með synjun um hæli og ræður hið háa hlutfall umsækjenda frá Balkanskaga miklu þar um.

Þá lauk 29% mála með endursendingu til annars öruggs Evrópuríki, ýmist samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni eða á grundvelli þess að umsækjandi hafði þegar fengið veitta vernd í viðkomandi ríki,“ segir ennfremur á vef innanríkisráðuneytisins.

Þjóðerni hælisleitenda
Þjóðerni hælisleitenda
Hvernig málum hælisleitenda hefur lokið
Hvernig málum hælisleitenda hefur lokið
Fjöldi þeirra sem hafa sótt um hæli síðustu ár
Fjöldi þeirra sem hafa sótt um hæli síðustu ár
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert