Í dag var fyrsta íslenska kauphöllin fyrir Auroracoins formlega opnuð. Allir Íslendingar fengu rafmyntina gefins fyrir nokkru og geta nú umbreytt henni í íslenskar krónur eða tekið þátt í þessu hagkerfi. Miðað við gengi dagsins og upphæðina sem Íslendingar fengu er verðmætið um 38 þúsund krónur. Meira
Netgjaldmiðillinn bitcoin gæti hentað Íslendingum sérlega vel vegna fyrirsjáanleika varðandi verðbólgu en hins vegar er tæknin ennþá ný og gengið alltof óstöðugt til þess að hægt sé að íhuga upptöku. Til stendur að opna íslenska kauphöll fyrir netgjaldmiðla. Meira
Í nóvember geta þau sem eiga nógu mikið af rafmyntinni Smileycoins keypt kaffi-, te- og kakóbolla verslun Hámu í Tæknigarði í Háskóla Íslands. Um er að ræða tilraunaverkefni kennara skólans. Einn bolli kostar tíu þúsund SMLY eða sem samsvarar 5 íslenskum krónum á núverandi gengi. Meira
Fyrirtækið ZABitcoinATM hyggst setja upp fyrsta Bitcoin-hraðbankann í Afríku fyrir lok þessa mánaðar. Bitcoin er rafrænn gjaldmiðill, líkt og Auroracoin sem dreift var meðal Íslendinga fyrr á þessu ári. Meira
Tölvu- og snjallsímarisinn Apple hefur breytt stefnu sinni gagnvart forritum sem notast við rafræna gjaldmiðla. Stefnan, sem var mun þrengri áður, leyfir nú forrit eða öpp sem notast við „viðurkennda“ rafræna gjaldmiðla. Meira
Söfnunarátak hófst í morgun á vegum JCI á Íslandi þar sem fólk er hvatt til þess að gefa rafmyntina auroracoin til ABC barnahjálpar. Minnst er á í því sambandi að forsprakkar rafmyntarinnar hafi nýverið gefið hverjum og einum Íslendingi 31,8 aur. Meira
Skógarmenn KFUM í Vatnaskógi hafa hafið söfnun fyrir nýjum leiktækjum á Eyrarvatn í sumar. Söfnunin er með heldur óvenjulegum hætti en safnað er rafmyntinni vinsælu auroracoin. Meira
Stjórnvöld telja mikilvægt að eyða lagalegu tómarúmi sem snýr að sýndarfé hér á landi. Sýndarfé á borð við auroracoin sé hvorki viðurkenndur lögeyrir né gjaldmiðill í skilningi íslenskra laga. Meira
Fyrirbærið auroracoin, sem hefur verið kallað rafrænn gjaldmiðill, rafmynt eða sýndarfé í daglegu tali, hefur verið á flestra vörum undanfarna daga. Þúsundir Íslendinga hafa sótt sér sína „aura“ og hafa margir nú þegar komið þeim í verð, ef svo má að orði komast. Meira
Um tólf þúsund Íslendingar hafa nú sótt rafmyntina auroracoin sem byrjað var að gefa á miðnætti í gærnótt. Hver og einn landsmaður getur sótt um 31,8 einingar af myntinni á heimasíðu hennar. Þó er nauðsynlegt að auðkenna sig með annaðhvort símanúmeri eða facebookaðgangi. Meira
Rúmlega fimm þúsund Íslendingar hafa í dag sótt auroracoin-rafmynt sem byrjað var að gefa á miðnætti síðustu nótt. Hver og einn landsmaður getur sótt um 31,8 einingar af myntinni á heimasíðu hennar, en nauðsynlegt er að auðkenna sig með annaðhvort símanúmeri eða Facebook-aðgangi. Meira
Byrjað er að dreifa rafmiðlinum auroracoin, en hver og einn Íslendingur getur fengið úthlutaðar 31,8 einingar af myntinni án þess að greiða fyrir. Miðað við markaðsvirði myntarinnar á rafmiðlakauphöllum þessa stundina er virði eininganna sem úthlutað er um 45 þúsund krónur. Meira
Íslensk stjórnvöld hafa varað við hugsanlegri áhættu tengdri kaupum, varðveislu á eða viðskiptum með sýndarfé, svo sem bitcoin og auroracoin. Meira
Rætt var um miðilinn auroracoin á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun, en þar var lögð áhersla á að fræða og vara neytendur við áhættunni sem fyrirbærið kunni að skapa. Þetta segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður nefndarinnar. Meira
Markaðsvirði rafmiðilsins auroracoin hefur rokið upp síðustu daga og miðað við það verð sem menn kaupa miðilinn á í dag er heildarverðmæti hans um 56 milljarðar íslenskra króna. Meira
Rafræni gjaldmiðillinn Bitcoin er nú á allra vörum en ekki er ýkja langt síðan aðeins örfáir tækninördar og spákaupmenn könnuðust við gjaldmiðilinn. Hróður hans hefur aukist mjög á undanförnum mánuðum og eru æ fleiri fyrirtæki sem sjá sér hag í því að taka við honum. Meira
Viðskipti með nýju rafmyntina Auroracoin eru byrjuð á vefnum Cryptorush, en miðað við gegni síðasta sólarhrings liggur verðmæti miðilsins á bilinu 240 til 300 krónur fyrir hverja einingu. Ef allir Íslendingar fá 31,8 einingar úthlutaðar þýðir það að verðmæti þess er um 9.500 krónur á hvern einstakling eða allt að 3,15 milljarðar. Meira
Ekkert sérstakt starfsleyfi eða eftirlit er með dulmálsgjaldmiðlum eins og Bitcoin eða Auroracoin, sem stefnt er að því að gefa út í næsta mánuði. Þannig eru slíkir miðlar ekki lögeyrir á Íslandi og þar með er engum skylt að taka við honum. Þetta segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri í Seðlabanka Íslands. Meira
Eftir rúmlega einn og hálfan mánuð munu allir Íslendingar fá gefins hluta af heildarfjármagni nýju rafmyntarinnar auroracoin, en þetta er nýstárleg aðferðafræði í uppbyggingu samfélags um rafmynt. Sá sem stendur á bakvið myntina segir hana vera tækifæri til að losna undan verðbólgu, gjaldeyrishöftum og gengisfellingu. Meira