Tala þeirra sem fórust í öflugum jarðskjálfta á Ítalíu í nótt heldur áfram að hækka. Samkvæmt síðustu tölum fórust að minnsta kosti 159 manns í jarðskjálftanum og 368 eru særðir.
Skjálftinn mældist 6,2 á stærð og fannst víða um Ítalíu, allt frá Bologna í norðri til Napolí í suðri, en upptök hans voru um 70 km frá borginni Perugia. Ítalska eldfjalla- og jarðeðlisfræðistofnunin hafði um þrjúleytið í dag numið rúmlega 200 eftirskjálfta.
Björgunarsveitir gera ráð fyrir að halda áfram leit sinni í alla nótt að þeim sem grafnir eru í rústunum og er notast við bæði vinnuvélar og handaflið við leitina.
Vitað er til þess að 86 manns hafi farist í bæjunum Amatrice og Accumoli, og segir bæjarstjóri Amatrice að þrír fjórðu hlutar þessa sögufræga bæjar hafa eyðilagst í skjálftanum. Talið er að margir liggi enn grafnir í húsarústum beggja bæja.
Mikil fagnaðarlæti brutust út í þorpinu Pescara del Tronto þegar átta ára stúlku var bjargað lifandi úr rústum í bænum.
„Þetta eru ekki lokatölur,“ sagði Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, á fundi með fréttamönnum fyrr í kvöld. Hann hafði áður lofað björgunarsveitarmenn og sjálfboðaliða fyrir starf sitt, en margir ruku til eftir að skjálftans varð vart í nótt og hófu að grafa fólk upp með berum höndum.
Renzi hét því að enginn myndi verða skilinn eftir.
Smábæir og þorp í fjalllendi á mörkum héraðanna Umbriu, Lazio og Le Marche urðu verst út i skjálftunum.
Auk þeirra sem staðfest er að hafi farist í Amatrice og Accumoli er vitað að a.m.k. 34 fórust í Le Marche-héraðinu, m.a. í nágrannabæjunum Arquata del Tronto og Pescara del Tronto.
Erfitt aðgengi er að mörgum þessara litlu fjallabæja og er nú verið að koma upp tjaldbúðum fyrir þá sem þurfa á húsaskjóli að halda, en einnig er verið að koma upp neyðarskýlum í íþróttahúsum á svæðinu.