Að minnsta kosti 38 manns fórust og 150 særðust í jarðskjálftanum á Ítalíu í nótt. Skjálftinn fer í hóp með þeim mannskæðustu sem hafa gengið yfir landið.
Hér er listi yfir mannskæðustu skjálftana á Ítalíu síðustu 30 árin:
Ágúst 2016: Skjálfti af stærðinni 6,2 gekk yfir fjallaþorp í héruðunum Umbria, Marche og Lazia. Að minnsta kosti 38 manns fórust.
Maí 2012: 23 fórust í tveimur skjálftum sem gengu yfir Emilia Romagna-héraðið á norðurhluta Ítalíu. 14 þúsund manns misstu heimil sín.
Apríl 2009: Alls fórust 309 manns þegar jarðskjálfti gekk yfir Mið-Ítalíu. Um 65 þúsund manns misstu heimili sín. Verðmætar kirkjur og minnisvarðar eyðilögðust.
Október 2002: Þrjátíu fórust og 61 særðist þegar þorpið San Guiliano di Puglia í austurhéraðinu Molise lenti í öflugum jarðskjálfta. Þar af fórust 27 börn og kennari þeirra þegar skólinn þeirra hrundi til grunna.
September 2002: Jarðskjálfti varð tveimur að bana í Palermo á Sikiley.
Júlí 2001: Að minnsta kosti þrír fórust í jarðskjálfta í Alto Adige, skammt frá Bolzano í norðurhluta Ítalíu.
September og október 1997: Tveir jarðskjálftar skóku héruðin Umbria á Mið-Ítalíu og Marche í austurhluta landsins á einni viku. Tveir fórust og yfir 110 slösuðust. 38 þúsund misstu heimili sín.
Desember 1990: 17 fórust og 200 slösuðust í jarðskjálfta sem gekk yfir Sikiley.
Maí 1990: Fjórir létu lífið í skjálfta í héraðinu Basilicate.
Nóvember 1980: Yfir 2.900 manns fórust í kröftugum jarðskjálfta í héruðunum Campania og Basilcate í suðurhluta landsins.
Janúar 1915: Um 30 þúsund manns létust í bænum Avezzanu í Abruzzo af völdum skjálfta.
Desember 1908: Mannskæðasti jarðskjálftinn í sögu Ítalíu gekk yfir Reggio di Calabria og Sikiley þar sem um 95 þúsund manns fórust.