Björgunarsveitir á Ítalíu vinna nú að því hörðum höndum að bjarga fólki úr húsarústum eftir harðan jarðskjálfta í nótt og nýta björgunarsveitir í smáþorpinu Illica m.a. hunda við að hafa uppi á þeim sem kunna enn að vera á lífi undir rústunum.
Að minnsta kosti 73 manneskjur létu lífið eftir jarðskjálftann sem reið yfir Mið-Ítalíu í nótt og búast björgunarmenn við að tala látinna eigi enn eftir að hækka.
Töluverður fjöldi ferðamanna er á svæðinu, auk heimamanna, en fjallaþorpin eru vinsæll sumarhúsastaður meðal Ítala.
Upptök skjálftans, sem mældist 6,2 stig, eru 76 km suðaustur af borginni Perugia á um 10 km dýpi.
Svæðið þar sem skjálftinn reið yfir nú er í nágrenni borgarinnar L‘Aquila þar sem 300 manns fórust í jarðskjálfta árið 2009.