Búist er við að yfir hundrað þúsund manns verði viðstaddir á minningarathöfn um brasilísku knattspyrnumennina sem fórust í flugslysi í Kólumbíu nýverið. Forseti landsins, Michel Temer, vottaði þeim virðingu sína þegar flugvél lenti með líkum liðsmannanna innanborðs.
Minningarathöfnin verður í heimabæ þeirra, Chapeco, á leikvangi knattspyrnuliðsins Chapecoense en allir liðsmenn knattspyrnuliðsins létust. BBC greindi frá.
Flugvélin varð eldsneytislaus.
Frétt mbl.is: Var varaður við eldsneytisskorti