„Vopnahléið myndi hefjast á morgun“

Joe Biden Bandaríkjaforseti.
Joe Biden Bandaríkjaforseti. AFP

Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að vopnahlé á Gasa geti orðið mögulegt á morgun, sunnudag, ef Hamas-samtökin samþykkja að frelsa gíslana sem þau tóku í hald þann 7. október.

„Það yrði vopnahlé á morgun ef Hamas-samtökin myndu sleppa gíslunum,“ sagði Biden á fjáröflunarviðburði í Seattle-borg í kvöld. Hann hefur forðast umræðuefnið á þremur svipuðum viðburðum í gær.

Segir boltann hjá Hamas

„Ísraelar sögðu að það væri Hamas-samtakanna að gera þetta, ef þau vilja. Við getum bundið enda á þetta á morgun. Og vopnahléið myndi hefjast á morgun,“ sagði Biden við um 100 manna hóp.

Forsetinn vakti máls á þessu eftir að hafa varað Ísraela við því á miðvikudag að Bandaríkin myndu hætta að útvega Ísraelum vopn ef Ísraelar gerðu árás á borgina Rafah á suðurhluta Gasa.

Ísraelsmenn og Hamas-samtökin hafa enn ekki náð að semja um varanlegt vopnahlé þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ísrael hafnaði vopnahléstillögu Hamas-samtakanna á dögunum.  Benja­mín Net­anja­hú for­sæt­is­ráðherra Ísra­els lýsti því yfir að rík­is­stjórn hans gæti ekki fall­ist á sam­komu­lag sem Ham­as-liðar höfðu áður samþykkt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert