„Líf mitt hefur voða lítið breyst“

Signý Arnórsdóttir úr Keili lítur ekki svo á að hún eigi titil að verja á Íslandsmótinu í höggleik á Akureyri en hún er ríkjandi meistari frá því á Akranesi í fyrra. 

„Líf mitt hefur voða lítið breyst,“ sagði Signý sposk en neitaði því ekki að Íslandsbikarinn hafi tekið sig vel út á heimili hennar síðasta árið. 

Signý hefur sjaldan spilað á Akureyri síðustu árin en segir sömu lögmál gilda á Íslandsmótum, burtséð frá því á hvaða velli mótið er haldið. Kylfingar þurfa að spila sitt besta golf til að vinna. 

Viðtalið við Signý er að finna í heild sinni í meðfylgjandi myndskeiði. 

Signý Arnórsdóttir á EM á Urriðavelli á dögunum.
Signý Arnórsdóttir á EM á Urriðavelli á dögunum. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert