Vill ekki líkja kvikmyndinni við lekamálið

Leikkonan Cameron Diaz fer með eitt aðalhlutverkið í gamanmyndinni Sex …
Leikkonan Cameron Diaz fer með eitt aðalhlutverkið í gamanmyndinni Sex Tape. mbl.is/AFP

Leikkonan Cameron Diaz hefur nú tjáð sig um lekamálið sem Bandaríska alríkislögreglan hefur nú til rannsóknar en málið snýst um að tölvuþrjótar stálu nektarmyndum af nokkrum frægum einstaklingum og birtu á netinu.

Diaz fer með eitt aðalhlutverk í kvikmyndinni Sex Tape sem fjallar um par sem verður fyrir því óláni að heimatilbúið kynlífsmyndband þeirra ratar á netið.

Nú þegar umræðan um hakkara sem stela nektarmyndum af frægum konum hefur aukist undanfarið hefur Diaz þurft að tjá sig um málið. Hún vill alls ekki að fólk beri kvikmyndina Sex Tape saman við myndalekann umtalaða.

Útvarpsmaðurinn Nick Grimshaw tók viðtal við Diaz á dögunum fyrir BBC Radio One og líkti efni kvikmyndarinnar við lekamálið. Diaz var fljót að stoppa Grimshaw af. „Reyndar er þetta ekkert svipað. Karakterarnir í kvikmyndinni hlaða heimatilbúnu myndbandi á netið fyrir mistök á meðan það er brotið á friðhelgi þessa fræga fólks á ólöglegan hátt. Þarna er mikill munur á.“

Kvikmyndin Sex Tape var frumsýnd í Bandaríkjunum aðeins nokkrum dögum áður en stolnu ljósmyndunum af þekktum einstaklingum var lekið á netið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg