Obama með forskot á McCain

Barack Obama, sem virðist vera að tryggja sér útnefningu sem forsetaefni bandaríska Demókrataflokksins, hefur 8 prósentna forskot á John McCain, væntanlegt forsetaefni Repúblikanaflokksins, samkvæmt nýrri könnun sem Zogby stofnunin hefur gert fyrir Reutersfréttastofuna.

Könnunin bendir til þess, að Bandaríkjamenn hafi vaxandi áhyggjur af efnahagsástandinu í landinu og aðeins 16% þátttakenda töldu að stjórnvöld væru á réttri leið í þeim efnum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert