Vilja ekki endurreisa Sovétríkin

Vladimír Pútín, forseti Rússlands.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands. AFP

Rússnesk stjórnvöld eru ekki að reyna að endurreisa Sovétríkin. Þetta er haft eftir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í nýrri heimildamynd sem frumsýnd var í gær. Hins vegar segir forsetinn að enginnvilji taka rússneska ráðamenn trúanlega í því sambandi.

Haft er eftir Pútín í frétt AFP að vestræn ríki séu ekki að vinna að hagsmunum Úkraínu í deilum landsins við Rússa heldur að reyna að koma í veg fyrir að Sovétríkin verði endurreist. „En enginn vill trúa okkur, enginn vill trúa því að við erum ekki að endurreisa Sovrétríkin,“ segir hann í heimildamyndinni „World Order“. 

Pútín gagnrýnir einnig vestræn ríki vegna stöðu mála í Miðausturlöndum. „Það er einfaldlega ekki hægt að troða ykkar útgáfu af lýðræði, með góðu eða illa, upp á fólk sem tilheyrir öðrum menningarheimi, sem aðhyllist önnur trúarbrögð og hefðir,“ segir hann. Vestræn ríki virðist telja sig óskeikul „en þegar kemur að því að axla ábyrgð hverfa þau.“

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert