Tólf þúsund bókað tíma í skimun

Skimun er hafin í Turninum.
Skimun er hafin í Turninum. Ljósmynd/Jón Gústafsson/ÍE

Tólf þúsund manns höfðu bókað tíma í skimun eftir COVID-19-sjúkdómnum klukkan níu í morgun. Opnað var fyrir bókanir í gærkvöldi.

Skimanir hefjast í Turninum, Smáratorgi 3 í Kópavogi, klukkan 10. Fólki sem á bókaðan tíma er bent á að nota inngang á fyrstu hæð en þar verður fyrir starfsmaður sem tekur á móti því.

Heilbrigðisstarfsmenn í Turninum í morgun.
Heilbrigðisstarfsmenn í Turninum í morgun. Ljósmynd/Jón Gústafsson/ÍE

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu. Í fyrri frétt mbl.is kom fram að skimun hefði hafist fyrr í morgun en hið rétta er að skimunin er núna að hefjast.  

Ljósmynd/Jón Gústafsson/ÍE

„Nýja kórónuveiran sem veldur sjúkdóminum COVID-19 dreifist nú hratt um heiminn og hefur sett venjubundið líf úr skorðum. Mikill meirihluti þeirra sem smitast verður ekki alvarlega veikur. Flestir sem koma í skimun hafa aldrei fundið fyrir einkennum og eru því líklega ekki smitandi. Það sama á við alla starfsmenn í húsinu, hvort sem þeir starfa við skimanir eða ekki. Það er því ekki meiri hætta á ferðum í húsinu en annars staðar í borginni þar sem fólk kemur saman,“ segir í tilkynningunni.

Turninn í Kópavogi.
Turninn í Kópavogi. mbl.is/Árni Sæberg

„Um leið og þessi mikla þátttaka er ánægjuleg er ljóst að hún veldur álagi á það starfsfólk sem fyrir er í húsinu sem tengist ekki Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna þar sem skimanir fara fram. Það er einkum vegna aukinnar umferðar um húsið þessa dagana. Fólk á þakklæti skilið fyrir skilning og þolinmæði en baráttan við COVID-19 er samfélagslegt verkefni og á ábyrgð okkar allra að vel takist til.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert