23. maí 2012

50% bursta ekki tennur á sumrin

happylife.jpgVið lærum það snemma á lífsleiðinni að tannburstun er hluti af sjálfsagðri líkamsumhirðu og engin undankomuleið hvað það varðar.  Regluleg tannburstun fyrirbyggir tannskemmdir. Það höfum við lært.

Sumarið er tíminn

Stór hluti fólks finnur sér ýmsar afsakanir fyrir að hreyfa sig ekki reglulega.  Það sannfærir sjálfan sig með ýmiskonar afsökunum og ákveður að það sé ásættanlegt að stunda heilsurækt stundum og stundum ekki.   Sérstaklega á það við um sumartímann.  Þá eru enn fleiri en ella sem ákveða með sjálfum sér að það sé í lagi að taka sér frí frá ræktinni. 

Skyndihjálp eða lífsstíll?

Auðvitað er sjálfsagður hluti af daglegu lífi að hugsa vel um heilsuna og viðhalda góðum vöðvastyrk, liðleika og hjarta- og lungnaþoli.  Ekki bara ákveðna mánuði ársins, heldur alltaf, alla ævi.  Þjálfun er ekki lúxus eða munaður sem fólk leyfir sér annað slagið,  né skyndihjálp eða skammtíma lausn sem nóg er að stunda í stuttum lotum 2-3x á ári.  Þetta vita allir, ekki satt?

14 daga að detta úr formi

Líkamsrækt er í eðli sínu ekkert öðruvísi en tannumhirða,  hana þarf að stunda reglulega og um leið og þú hættir missir þú fljótt niður það sem þú hafðir fyrir að byggja upp.  Rannsóknir sýna að eftir 14 daga hlé frá æfingum tapast styrkur og þol hratt niður eftir það.  Ein rannsókn sýndi að byrjandi sem hafði æft af krafti í 2 mánuði hafði tapað niður öllu þoli sem hann byggði upp, eftir 2ja mánaða hlé frá æfingunum.

Ógæfutölur á vigtinni

Góðu fréttirnar eru að sífellt fleiri eru að átta sig á mikilvægi þess að æfa allt árið um kring og halda sínu striki þrátt fyrir jól, páska og sumarfrí.  En því miður er enn fjöldi fólks sem lítur á heilsurækt sem einskonar skyndihjálp sem gott er að taka í styttri lotum, gjarnan í kjölfar þess að vigtin tekur upp á því að sýna ógæfulegri tölu.

Það er augljóslega afar óskynsamlegt að sleppa tannburstun  í nokkra mánuði á ári.  Það er alveg jafn óráðlegt að hætta í líkamsræktinni yfir sumarmánuðina.

Hvað finnst þér?

Finnst þér ótrúverðug fyrirsögn þessa pistils?  Hvað ef hún hefði verið „50% hætta að æfa á sumrin"?  Hefði þér fundist það trúlegri fullyrðing?  Er það ásættanlegt?

Þú getur breytt!

Hvernig væri að snúa dæminu við í sumar.  Á þessum árstíma hafa margir meiri frítíma.  Þá er einmitt tilvalið að setja sér ný heilsuræktar markmið.  T.d. að geta gert fleiri armbeygjur á tánum, að geta hlaupið hraðar og lengur, eða geta rennt upp uppáhalds gallabuxunum.  Meiri orka, kraftur, úthald og styrkur gerir lífið skemmtilegra, betra og e.t.v. lengra!

mynd
8. maí 2012

Nart á milli mála - fitandi eða grennandi?

Nart á milli mála getur verið af hinu góða ef rétt er að farið.  Þú getur haldið blóðsykrinum og orkunni stöðugri yfir daginn með því að fá þér nasl á milli mála sem um leið minnkar líkur á hinni velþekktu skyndilöngun í sætindi sem mörgum finnst erfitt að standast.   Galdurinn er að kunna að snarla skynsamlega.  Ef þú nartar of oft og of mikið í einu gæti mittismálið smám saman Meira
mynd
1. maí 2012

Yngingarlyf - hefurðu prófað?

Margir hlaupa af stað í ræktina um þessar mundir staðráðnir í að líta betur út í baðfötum í sumar.  Ert þú ekki í þeim hópi?  En hvað ef ferðirnar í ræktina geta bætt árum við líf þitt?  Regluleg þjálfun er hollur lífsstíll sem hefur ekki aðeins jákvæð áhrif á líðan þína og útlit, en er að auki eitt það mikilvægasta sem þú getur gert til að stuðla að því að bæta árum við líf þitt Meira
mynd
10. apríl 2012

Stæltur kroppur í sólinni

Með bjartsýni í hjarta hlökkum við til sumarsins sem hlýtur að vera alveg á næsta leiti.  Hærri hitatölur, sólskin, léttari fatnaður og meiri útivera er hluti af þessari ljúfu árstíð sem margir telja þá bestu.   Sumarið er tíminn sem við spókum okkur á stuttbuxum og hlírabol eða litríkum sundfötum og þá er ekki verra að hafa styrkt og stælt kroppinn aðeins til.Hér eru nokkur góð ráð Meira
mynd
5. apríl 2012

Er þjálfunin þín of einhæf?

Góð alhliða þjálfun sem bætir líkamshreysti byggist á fimm lykilþáttum. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í reglubundinni þjálfun eða hefur æft í mörg ár og telur þig vera í toppformi er vel útfært alhliða æfingakerfi, með góðu jafnvægi á milli grunnþátta þjálfunar, grundvöllur þess að þú náir toppárangri.  Eftirfarandi fimm þættir ættu að vera hluti af æfingakerfinu Meira
mynd
20. mars 2012

Gómsætir og hollir íspinnar - uppskrift

Börnin segja stundum ,,Allt óhollt er gott og allt sem er hollt er vont".  Það má e.t.v. deila um hvort eitthvað sé til í því.   Ef það er til kex eða annað sætmeti í skápunum eru litlir fingur gjarnan duglegir að teygja sig í slíkt frekar en að afhýða appelsínu eða banana.  Það getur verið snúið að fá börnin til að velja hollari kostinn.  Gómsætir heimagerðir Meira
mynd
7. mars 2012

Svona losnarðu við síðustu 5 kílóin

Fjöldi fólks kannast við að hafa reynt mikið til að losna við þessi ergilegu síðustu 5 kg sem virðist mörgum fullkominn ógjörningur.   Af hverju reynist það svo erfitt?   M.a. er því um að kenna að líkaminn er magnað fyrirbæri og leitast í sífellu við að aðlagast nýjum aðstæðum sem getur komið sér vel í vissum aðstæðum en þegar við reynum að losa okkur við aukakíló með aukinni Meira
mynd
25. febrúar 2012

Lætur þú blekkjast?

Prótín eru líkamanum nauðsyn.  Ekki aðeins sem byggingarefni eða orka fyrir frumurnar heldur gegna þau fleiri mikilvægum hlutverkum, t.d. mynda mótefni í líkamanum sem óvirkja bakteríur,  flytja efni um líkamann t.d. blóðrauða og mynda nauðsynleg hormón og ensím (hvata). Ýmsar misvísandi upplýsingar og skilaboð eru uppi um prótín.  Auglýsingar gefa til kynna að mikilvægt, jafnvel Meira
mynd
16. febrúar 2012

Frábært líf eftir fimmtugt

Alla daga lífsins erum við að eldast.  Það er gangur lífsins og vissulega betra að eldast en ekki og hver aldur hefur sinn sjarma.   Heilsufar fólks er mis gott og sumir sem komnir eru yfir miðjan aldur glíma við heilsubrest af einhverju tagi s.s. of háan blóðþrýsting, of hátt kólesteról, of mikla streitu, offitu, veikleika í taugakerfi eða almennt slen eða orkuleysi.  Aðrir Meira
mynd
6. febrúar 2012

6 góð ráð fyrir þá sem eru að hugsa.

"Ég er á leiðinni að byrja að æfa reglulega" hef ég heyrt ótal sinnum í gegnum tíðina.  Það er jákvætt að vera á leiðinni, vissulega betra en að vera ekki á leiðinni.  Það sem vantar er auðvitað að taka skrefið.  Kannast þú e.t.v. við að vera á leiðinni?  Hefurðu verið að íhuga í talsverðan tíma að láta verða af því að skella þér í ræktina?  Þá er bara eitt að Meira