Héraðsdómur Reykjaness samþykkti í dag beiðni kröfuhafa United Silicon um að heimild til greiðslustöðvunar yrði framlengd til 22. janúar.
United Silicon fékk í lok ágúst heimild til greiðslustöðvunar til 4. desember svo að unnt væri að rétta reksturinn af. Enn er unnið að tillögum um endurbætur á kísilveri United Silicon í Helguvík til að draga úr mengun sem stafar af framleiðslunni. Niðurstaða tæknilegra úttekta felur í sér umtalsverða fjárfestingaþörf í starfsemi verksmiðjunnar.
Yfir greiðslustöðvunartímann hefur kostnaður Arion banka, stærsta hluthafa United Silicon, numið meira en 600 milljónum króna samkvæmt heimildum mbl.is. Greint var frá því síðla nóvember að alþjóðlegir aðilar í kísiliðnaði hefðu sett sig í samband við Arion banka vegna United Silicon og lýst yfir áhuga á að skoða aðkomu að starfsemi verksmiðjunnar.
Kröfuhafar skoða einnig aðkomu að málum verksmiðjunnar en meðal þeirra eru Íslenskir aðalverktakar, Landsvirkjun, Reykjanesbær og ítalska fyrirtækið Tenova sem seldi United Silicon ljósbogaofninn.
Þá hefur verið haft eftir bankastjóra Arion banka að ekki sé útilokað að United Silicon verði sett í þrot og bankinn gangi þá að sínum kröfum.
Um sextíu manns eru að störfum hjá verksmiðjunni en frá því framleiðsla var stöðvuð í byrjun september hefur starfsfólkið meðal annars sinnt viðhaldi og tíminn verið nýttur í að styrkja það í störfum.