Vélhjólaslys á Reykjanesbraut

Tveir eru slasaðir eftir vélhjólaslys sem varð á Reykjanesbraut skammt frá Grindavíkurvegi laust eftir klukkan fimm i dag. Slysið mun hafa atvikast þannig að ökumaður bifreiðar taldi sig vera þar sem Reykjanesbraut er tvöföld og ók fram úr bifreið með hjólhýsi í eftirdragi án þess að gæta að sér. Bifreiðin mætti þá fjórum vélhjólum, tveimur þeirra tókst að komast hjá því að lenda á bifreiðinni en tveir bifhjólaökumenn féllu í götuna. Þeir eru eitthvað slasaðir og voru fluttir með sjúkrabifreið á Landspítalann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert