Talið er að bilað öryggisbelti hafi orsakað slysið í Terra Mítica, sem kostaði Andra Frey Sveinsson lífið hinn 7. júlí.
Þetta er fyrsta kenning spænsku lögreglunnar, sem rannsakar slysið. Við rannsóknina er tekið tillit til hraða rússíbanans og þyngdar farþega. Frá þessu er greint á spænsku fréttavefjunum Europa Press, El mundo og Typically Spanish.
Stjórnendur skemmtigarðsins segja að tækið hafi haft opinbera öryggisvottun, sem hafi verið gefin út af þriðja aðila.
Í yfirlýsingu sem fjölskylda Andra Freys gaf út kom fram að Andri Freyr hefði fallið úr um 15 metra hæð úr rússíbananum Inferno þegar öryggistæki gáfu sig í lok ferðarinnar. Enginn sjúkrabíll var í garðinum og þurfti fjölskyldan að bíða í 20–25 mínútur eftir aðstoð. Andri Freyr lést í bílnum á meðan hann var enn á svæði garðsins.
Rússíbaninn var framleiddur í Þýskalandi og sagður í samræmi við ströngustu öryggiskröfur. Stjórnendur garðsins segjast rannsaka hvað gerðist í samvinnu við verkfræðinga hjá framleiðandanum, þýska fyrirtækinu Stengel Engineering.
Samskonar tæki er einnig að finna í skemmtigörðunum Gröna Lund í Stokkhólmi og Borgbacken í Helsinki. Þeim var báðum lokað tímabundið vegna banaslyssins, en hafa verið opnaðir að nýju.
Biðu eftir sjúkrabíl í 20-25 mínútur
Allt gekk sinn vanagang þrátt fyrir slysið
Fjölskyldan gaf skýrslu í morgun
Pilturinn sem lést á Spáni
„Fyrir mér var þetta versta tækið“
Samskonar rússibönum lokað
Rannsókn hafin á banaslysi íslenska piltsins
Staðfest að pilturinn var íslenskur
Íslendingur sagður látinn í skemmtigarði