Ísraelsmenn ráðast inn á Gaza

Ísraelskir hermenn bíða átekta við landamærin að Gaza nálægt samyrkjubúinu …
Ísraelskir hermenn bíða átekta við landamærin að Gaza nálægt samyrkjubúinu Kibbutz Nirim í dag, Palestínumenn sátu fyrir hermönnum í eftirlitsferð í dag og felldu tvo og særðu tvo aðra. Reuters

Ísraelskir hervagnar fóru inn á Gazasvæðið í dag eftir að tveir ísraelskir hermenn féllu í átökum við Hamas. Fimm brynvagnar og tvær brynvarðar jarðýtur fóru yfir landamæri Gaza og stefndu til Khan Yunis, að sögn Berlingske Tidende. Í lofti sveimuðu herþyrlur og ómönnuð flugför.

Palestínumenn segja að hermenn á brynvögnunum hafi  sært a.m.k. einn palestínumann alvarlegu skotsári.

Politiken segir að ísraelsku brynvagnarnir hafi farið inn í Gaza eftir að tveir ísraelskir hermenn féllu í átökum við Hamas. 

Fjórir palestínumenn féllu fyrr í dag í átökum við Ísraelsmenn. Átökin voru þau blóðugustu á Gazasvæðinu frá því innrás Ísraelshers lauk fyrir 14 mánuðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert