mbl.is 25 ára

mbl.is fór í loftið aðfaranótt 2. febrúar 1998 og er því 25 ára. Fasteignavefur mbl.is var opnaður 15. febrúar 1998 og síðar bættust við fjölmargir undirvefir, sumir settir upp tímabundið.

Heimsóknir á mbl.is voru sjö þúsund fyrsta sólarhringinn, en í 8. viku 2022 voru daglegir innlendir gestir mbl.is að meðaltali ríflega 250.000 á dag. Heimsóknatölur á mbl.is má sjá hér.