Play fer og hittir jólasveininn

Flugfélagið Play hefur sett í sölu flug til þorpsins Rovaniemi í norðurhluta Finnlands. Þetta rómaða þorp er þekkt fyrir að vera heimkynni jólasveinsins, en Rovaniemi er höfuðstaður Lapplands.  

Flogið verður 7. desember frá Keflavíkurflugvelli til Rovaniemi-flugvallar en heimferðin er degi síðar. Íslendingum býðst því einstakt tækifæri til að heimsækja þessa finnsku töfraveröld.  

Hægt er að hitta jólasveininn og eiginkonu hans í jólasveinaþorpinu Santapark alla daga ársins, en um 600 þúsund manns leggja leið sína þangað á ári hverju.  

Rovaniemi er líflegt háskólaþorp en þar búa 65 þúsund manns og um það bil 12 þúsund hreindýr eru á svæðinu. 

Þar er hægt að fara í norðurljósaskoðunarferð á hundasleða eða sofa undir stjörnunum í glerkúluhúsi. Hvað svo sem verður fyrir valinu er ljóst að ef ætlunin er að koma sér í jólaskap með góðum fyrirvara í ár, þá mun ferð til Rovaniemi engan svíkja.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert