Vinnustöðvun hjá Primera samþykkt

Kjaradeilur í fluggeiranum | 29. september 2018

Vinnustöðvun hjá Primera samþykkt

Félagsfólk í Flugfreyjufélagi Íslands hefur samþykkt að boða til ótímabundinnar vinnustöðvunar flugfreyja um borð í flugvélum Primera sem fljúga með farþega frá og til Íslands.

Vinnustöðvun hjá Primera samþykkt

Kjaradeilur í fluggeiranum | 29. september 2018

Vinnustöðvunin hefst klukkan sex að morgni 15. nóvember hafi samningar …
Vinnustöðvunin hefst klukkan sex að morgni 15. nóvember hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Ljósmynd/Aðsend

Félagsfólk í Flugfreyjufélagi Íslands hefur samþykkt að boða til ótímabundinnar vinnustöðvunar flugfreyja um borð í flugvélum Primera sem fljúga með farþega frá og til Íslands.

Félagsfólk í Flugfreyjufélagi Íslands hefur samþykkt að boða til ótímabundinnar vinnustöðvunar flugfreyja um borð í flugvélum Primera sem fljúga með farþega frá og til Íslands.

Vinnustöðvunin hefst klukkan sex að morgni 15. nóvember hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma.

Atkvæðisrétt höfðu 2.097 félagsmenn. Atkvæði greiddu 573 félagsmenn  og féllu atkvæði þannig að já sögðu 567, nei sagði einn, fimm seðlar voru auðir eða ógildir. 

Deilur Flugfreyjufélags Íslands og Primera hafa staðið lengi. Greint var frá því í febrúar að fulltrúar flugfélagsins mættu ekki á fund sem ríkissáttasemjari hafði boðað í deilunni. Var það sjötti fundur ríkissáttasemjara sem fulltrúar félagsins virtu að vettugi.

Deil­an snýst um kaup og kjör starfs­manna Pri­mera Air, en flug­fé­lagið hef­ur ekki viljað gera kjara­samn­ing við Flug­freyju­fé­lagið og greiðir því ekki sam­kvæmt ís­lensk­um kjara­samn­ing­um. Primera vísar aftur á móti til þess að það starfi ekki á íslenskum vinnumarkaði og að það standi ekki í kjaradeilu.

mbl.is