Athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson og eiginkona hans, Kristín Ólafsdóttir, fögnuðu stórafmæli bresku stjörnunnar Jacqui Ritchie á dögunum. Frú Ritchie er meðal annars þekkt fyrir að vera eiginkona leikstjórans Guy Ritchie. Leikstjórinn er líkt og Björgólfur góður vinur Davids Beckhams.

Jacqui Ritchie sem reglulega er fjallað um í breskum götumiðlum fagnaði fertugsafmæli sínu á dögunum. Björgólfur og Kristín sendu henni afmæliskveðju á Instgram sem hún endurbirti í vikunni.
„Til hamingju með afmælið elsku Jacqui – takk fyrir frábært partí,“ skrifaði Björgólfur til frú Ritchie og birti mynd af þeim saman. Frú Ritchie lýsti Björgólfi þá á þann veg að hann hefði farið síðastur heim. Kristín birti einfaldlega mynd og sagði frú Ritchie að þær hefðu skemmt sér vel saman.
Björgólfur sést reglulega í félagsskap með Ritchie-hjónunum og stundum er knattspyrnustjarnan David Beckham með. Félagarnir hafa veitt saman á Íslandi og horfðu þeir saman á undanúrslitaleik Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu í sumar.
Jacqui Ritchie hélt greinilega stórglæsilega afmælisveislu í tilefni fertugsafmælisins. Hún birti myndir af sér úr veislunni á Instagram þar sem hún var klædd eins og drottning. Sagðist hún vera þakklát að verða fertug umkringd fjölskyldu og vinum frá öllum heimshornum.