Tangóið lengir lífið

Eldri borgarar í Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ, dansa tangó til að viðhalda góðri heilsu á efri árum. 

Félagar í hreyfingunni „No me olvides“, eða: Ekki gleyma mér, hittast reglulega í miðborg Montevideo og dansa tangó. 

„Við dönsum samkvæmt læknisráði, þetta er eins og hvert annað lyfseðilsskylt lyf sem bætir allt. Þú hreyfir höfuðið, hjartað og allt saman, þetta er gott allan hringinn,“ segir ein dansmærin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert