Verða í Reykjavíkurhöfn um hádegi

Varðskipið Þór með Akurey í togi á leið til hafnar.
Varðskipið Þór með Akurey í togi á leið til hafnar. Ljósmynd áhöfn varðskipsins Þórs

Varðskipið Þór er nú með ísfisktogarann Akurey AK-10 í togi á leið til hafnar í Reykjavík eftir að skipið varð vélarvana djúpt vestur af Vestfjörðum í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er Þór kominn inn í Faxaflóa og von á að skipin verði komin til hafnar í Reykjavík um hádegi.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk beiðni um aðstoð frá skipstjóra Akureyjar á sjöunda tímanum í gærmorgun. Varðskipið Þór var þá á Bíldudal og hélt þegar af stað til móts við Akurey. Um klukkan 13:00 var Þór kominn að Akurey og tók skamma stund að koma taug á milli skipanna. Að því búnu hélt varðskipið áleiðis til Reykjavíkur með Akurey í togi.

Björgunarskip frá Ísafirði er síðan á leið til hafnar með bát sem varð vélarvana utan við Ritur í Ísafjarðardjúpi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert