3,8 stiga skjálfti

Svæðið austan Grímseyjar er mjög skjálftavirkt og hrinur algengar.
Svæðið austan Grímseyjar er mjög skjálftavirkt og hrinur algengar. mbl.is/Sigurður Bogi

Jarðskjálftahrina hófst um klukkan tvö í nótt úti við Grímsey. Ríflega 60 skjálftar hafa mælst á svæðinu að sögn náttúruvársérfræðings Veðurstofu Íslands.

Sá stærsti varð klukkan 15.59 í dag og var hann 3,8 að stærð.

Svæðið austan Grímseyjar er mjög skjálftavirkt og hrinur algengar. Nokkur hrinuvirkni var á svæðinu síðast í haust, þá mældist skjálfti af stærð 4,9 þann 8. september og 19. október mældist skjálfti af stærð 3,8 eins og núna.

Búast má við að skjálftavirkni haldi áfram á svæðinu, jafnvel næstu daga, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka