Styrkja varaflugvöll á Egilsstöðum

Nýja akbrautin verður byggð við hlið flugbrautarinnar.
Nýja akbrautin verður byggð við hlið flugbrautarinnar. Mynd/Verkís

Isavia innanlandsflugvellir ehf. hyggjast leggja nýja 970 metra langa akbraut meðfram flugbraut Egilsstaðaflugvallar og með því auka getu flugvallarins til að taka á móti millilandaflugvélum í neyðarástandi.

Framkvæmdir taka tvö ár og að þeim loknum á völlurinn að geta tekið á móti tíu farþegaþotum.

Skipulagsstofnun hefur á skipulagatt.is leitað umsagna vegna ákvörðunar um matsskyldu á grundvelli laga.

Egilsstaðaflugvöllur er einn af fjórum alþjóðaflugvöllum á Íslandi og gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug til og frá Íslandi ef Keflavíkurflugvöllur lokast vegna veðurs eða af öðrum ástæðum. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert